Dagur Gauta í KA Vinstri hornamaðurinn, Dagur Gautason hefur samið við sitt uppeldisfélag KA og leikur með liðinu út tímabilið. Dagur gerir samning við KA til ársins 2027. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni nú rétt í þessu. Dagur gengur í raðir KA frá norska félaginu Arendal en hann hefur leikið með liðinu undanfarin ár að undanskildu hálfu ári í fyrra er hann fór til Montpellier í frönsku úrvalsdeildinni. Dagur er kominn til landsins og hefur æfingar með KA strax við fyrsta tækifæri. Dagur Gautason var orðaður við heimkomu í KA fyrir tímabilið en hann var félagslaus eftir veru sína hjá Montpellier. KA bauð honum samning í sumar en á endanum ákvað Dagur að taka slaginn aftur með Arendal í Noregi. Nú er hann hinsvegar kominn aftur heim í KA og mun leika með liðinu í Olís-deildinni eftir áramót en KA er einnig komið í Final4 í Powerade-bikarnum. Dagur er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir KA á síðustu vikum. Í morgun tilkynnti félagið að Ari Valur Atlason hafi gengið í raðir félagsins frá FH og fyrir jól gekk Ágúst Elí Björgvinsson markvörður í raðir félagsins eftir veru sína hjá Ribe Esbjerg síðustu ár. KA er í 5.sæti Olís-deildarinnar með 18 stig, stigi á eftir FH sem er í 4.sætinu. Liðið var lengi vel nálægt toppi deildarinnar en tvö töp í röð gegn Haukum og Aftureldingu í desember reyndist liðinu dýr í toppbaráttunni. Það er óhætt að segja að KA mæti með gríðarlega sterkt lið í Olís-deildina þegar deildin fer aftur af stað í byrjun febrúar og eru til alls líklegir miðað við þær styrkingar sem liðið hefur fengið síðustu vikur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.