
Sergio Barros (Instagram)
Fyrrum portúgalski landsliðsmaðurinn, Sergio Barros sem gekk í raðir Harðar í Grill66-deildinni í september síðastliðnum er ekki lengur leikmaður félagsins þrátt fyrir að hafa skorað fjögur mörk í eins marks tapi liðsins gegn Val 2 á Ísafirði í dag. Sergio Barros sem er fæddur árið 1992 er vinstri hornamaður sem getur einnig leyst leikstjórandastöðuna en hann lék með Buzau í Rúmeníu áður en hann gekk í raðir Harðar. Barros á að baki 20 landsleiki og hefur skorað í þeim leikjum 27 mörk. Eitthvað hefur gengið á eftir leikinn í dag því Handknattleiksfélagið Hörður sendi frá sér tilkynningu nú rétt í þessu, nokkrum klukkutímum eftir leik liðsins gegn Val 2 um að félagið hafi ákveðið að segja upp samningi sínum við leikmanninn eftir hegðun hans sem var ekki í samræmi við staðla og gildi félagsins. ,,Ákvörðunin tekur mið af hegðun, bæði innan vallar og utan, sem hafði áhrif á faglegt umhverfi liðsins. Handknattleiksfélagið Hörður væntir ábyrgðar, virðingar og fagmennsku frá öllum þeim sem eru fulltrúar félagsins," segir í tilkynningunni frá félaginu og bætir ennfremur við að félagið muni ekki tjá sig frekar um málið. Sergio Barros lék lengst af með liði Sporting eða frá árinu 2011 til 2016. Þaðan fór hann til Norður-Makedóníu og lék með Eurofarm Pelister. Þá lék hann eitt tímabil með Nilufer í Tyrklandi, Puente Genil á Spáni og síðustu fimm tímabil hefur hann leikið í Rúmeníu Sergio Barros er ekki fyrsti og ekki annar leikmaður Harðar undanfarin ár sem félagið segir upp samningi sínum við, með litlum sem engum fyrirvara.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.