HK fær tvo leikmenn á láni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Patrekur Guðni (Egill Bjarni Friðjónsson)

HK sem situr í 9.sæti Olís-deildar karla hefur fengið til sín tvo leikmenn á láni fyrir lokaátökin í Olís-deild karla. Um er að ræða þá Patrek Guðna Þorbergsson og Orfeus Andreou.

Patrekur Guðni sem er uppalinn í HK gekk í raðir Þórs fyrir tímabilið en hefur nú verið lánaður til baka í HK. Patrekur Guðni sem er markvörður hefur leikið alla leiki tímabilsins með Þór fyrir áramót.

Orfeus Andreou var á reynslu hjá HK í síðustu viku eins og Handkastið greindi frá á dögunum og lék til að mynda æfingarleik með HK gegn Stjörnunni í síðustu viku sem vannst sannfærandi. Orfeus Andreou er grískur handboltamaður sem leikið hefur með Víði í Garði í 2.deild karla undanfarin ár.

Þetta verður í fyrsta skipti sem Grikkinn leikur í Olís-deild karla og verður fróðlegt að sjá hann í efstu deild á Íslandi en fjölmörg félög hafa sýnt honum áhuga síðustu ár.

HK fær FH í heimsókn í Kórinn í 16.umferð Olís-deildar karla annað kvöld klukkan 18:00 en HK er í 9.sæti deildarinnar með 10 stig, jafn mörg stig og Stjarnan. FH er hinsvegar í 4.sætinu með 19 stig en HK vann fyrri leik liðanna í Kaplakrika fyrir áramót.

Það má því að gera ráð fyrir hörkuleik í Kórnum annað kvöld þegar Olís-deild karla fer aftur af stað.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top