Róbert framlengir dvöl sína í Eyjum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Róbert Sigurðarson (Skapti Hallgrímsson / Akureyri.net)

Varnar- og línumaðurinn, Róbert Sigurðarson hefur framlengt samning sinn við ÍBV og verður áfram í Vestmannaeyjum út tímabilið 2027/2028 eða til næstu tveggja ára.

,,Róbert hefur verið stór hluti af félaginu í gegnum árin. Með baráttu anda, vinnusemi og sterka tengingu við Eyjar heldur hann áfram að leggja sitt af mörkum fyrir liðið og framtíð félagsins," segir í tilkynningunni frá ÍBV.

Róbert, sem er Akureyringur að upplagi og lék með Akureyri handboltafélagi áður en hann gekk í raðir ÍBV fyrir tímabilið 2017/2018 og lék sex tímabil með ÍBV áður en hann fór til Noregs og lék með Drammen.

Hann kom svo aftur til Eyja fyrir síðustu leiktíð og er ljóst að hann verður áfram í Eyjum. Þessar fréttir koma nú ekki mörgum á óvart en kærasta Róberts, Andrea Jacobsen skrifaði á dögunum undir samning við ÍBV til næstu tveggja ára.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top