
Bjarni Fritzson (Sævar Jónasson)
Staða ÍR á botni Olís-deildarinnar er slæm þegar einungis sex umferðir eru eftir af deildinni. ÍR tapaði illa gegn KA í fyrsta leik liðsins eftir áramót á heimavelli á miðvikudagskvöldið en fær HK í heimsókn strax á morgun í fyrsta leik 17.umferðar. Handkastið ræddi stöðu ÍR-liðsins í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins sem er aðgengilegur á öllum hlaðvarpsveitum og meira til. ,,Það sem ég tek úr tapinu hjá ÍR gegn KA er hversu þungur á brún Bjarni Fritzson þjálfari ÍR var í viðtali við Handkastið eftir leik. Það var virkilega erfitt að horfa á þetta og maður fann til með honum. Ég veit ekki hvort hann hafi verið að átta sig á stöðu liðsins eftir leikinn, hvort hann hafi kíkt á Textavarpið beint eftir leik og séð stöðuna í deildinni. Hann hefur haft allt jólafríið til að kíkja á stöðuna í deildinni og ég finn til með honum ef hann var að átta sig á slæmri stöðu liðsins bara í fyrradag," sagði þáttastjórnandi Handkastsins, Arnar Daði Arnarsson og hélt áfram. ,,Staða ÍR liðsins er grafalvarleg. Það eru ekki nema sex leikir eftir og tólf stig í pottinum og hann er fjórum stigum frá umspilssæti og eiginlega 5-6 stigum frá öruggu sæti þar sem liðin þarna í kring eiga eftir að mætast innbyrðis. Það er ÍR - HK á morgun og það er allt eða ekkert leikur fyrir ÍR." ,,Það er leikur sem verður að falla ÍR í vil," sagði Kristinn Björgúlfsson gestur Handkastsins áður en Stymmi klippari lét stóra dóm falla. ,,Ef ÍR vinnur ekki leikinn þá eru þeir fallnir, það er 100%. Ég skal slá því föstu að ÍR eru fallnir ef þeir vinna ekki HK á morgun. Þegar við mætum hingað í Rapyd-stúdíóið á mánudaginn þá getum við slegið því föstu hvort ÍR séu fallnir eða ekki. ÍR hefur unnið einn leik á tímabilinu, afhverju ættum við að sjá þá fyrir okkur vinna 2-3."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.