Bergrós Ásta Guðmundsdóttir (Egill Bjarni Friðjónsson)
Dregið var í undanúrslitum Powerade-bikarsins nú rétt í þessu. Hér að neðan má sjá viðureignirnar í undanúrslitunum sem leikin verða á Ásvöllum í Hafnarfirði í lok febrúar. Fram eru ríkjandi bikarmeistarar í karlaflokki en Haukar í kvennaflokki. Miðvikudaginn 25.febrúar: 18:00 Haukar - Fram 20:15 Valur - KA/Þór Fimmtudaginn 26.febrúar: 18:00 FH - Haukar 20:15 ÍR - KA Úrslitaleikirnir fara síðan fram á laugardeginum 28.febrúar. Kvennaleikurinn hefst klukkan 15:30 og karlaleikurinn klukkan 18:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.