Magnús Óli frá keppni næstu vikurnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Magnús Óli Magnússon (Baldur Þorgilsson)

Betur fór en á horfðist þegar Magnús Óli Magnússon meiddist að svo virtist mjög illa í tapi Vals gegn Haukum í 16.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi.

Magnús Óli fékk liðsfélaga sinn, Dag Leó Fannarsson á sig og fékk mikið og þungt högg á hnéð. Magnús Óli fékk aðhlynningu bæði frá sjúkraþjálfara Vals og Hauka í kjölfarið og haltraði af velli. Magnús Óli kom ekkert meira við sögu í leiknum og sat meiri segja ekki á varamannabekk Vals í seinni hálfleiknum.

Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals sagði í samtali við Handkastið að meiðslin hafi verið töluvert minni en búist var við í fyrstu.

,,Magnús Óli fór í læknisskoðun í morgun. Talið er að hann verði frá keppni í 2-3 vikur en það ætti að skýrast betur eftir helgi,” sagði Ágúst í samtali við Handkastið. Valur tapaði leiknum með sjö mörkum 34-41 en liðið heimsækir Aftureldingu í Mosfellsbæinn strax á sunnudaginn. 

Róbert Aron Hostert sneri hinsvegar til baka í leikmannahóp Vals í leiknum gegn Haukum sem eru jákvæðar fréttir fyrir Val en Róbert hefur verið að glíma við meiðsli meira og minna allt tímabilið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top