Dagur Arnarsson (Sævar Jónasson)
Dagur Arnarsson reyndist hetja Eyjamanna þegar hann skoraði sigurmark ÍBV í blálokin gegn Haukum á Ásvöllum í dag í 17.umferð Olís-deildar karla. Eyjamenn voru manni færri og fengu boltann þegar 8 sekúndur voru eftir af leiknum. ÍBV tók leikhlé og í kjölfarið fóru Haukamenn í maður á mann vörn útum allan völl í stöðunni 28-28. Einhverjir hefðu varið stigið en þess í stað tók Gunnar Magnússon þjálfari Hauka þá ákvörðun að láta sína menn hlaupa um allan völl að pressa Eyjamennina. Það gekk ekki betur en svo að þrátt fyrir að Haukar hafi verið manni fleiri, var Dagur Arnarsson einn og óvaldaður á vallarhelmingi Hauka og Andri Erlingsson fann Dag sem nýtti sér tækifærið og skoraði sigurmark ÍBV í þann mund sem bjallan gall. Hér að neðan er hægt að sjá síðustu mínútu leiksins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.