Tandri Már Konráðsson (Dragomir Ovidiu)
Tandri Már Konráðsson fyrirliði Stjörnunnar í Olís-deild karla segist stefna á endurkomu á völlinn í síðustu leikjum Stjörnunnar á tímabilinu en hann varð fyrir því óláni að slíta hásin í forkeppni Evrópudeildarinnar í Rúmeníu fyrir tímabilið. Stjarnan mætti þar rúmenska liðinu Baia Mare í tveimur leikjum en féll úr keppni eftir vítakastkeppni. Tandri Már sleit hásin í fyrri leik liðanna sem fram fór í upphafi tímabils. Rúmlega fimm mánuðir er síðan Tandri gekkst undir aðgerð eftir hásina slitin en er allur að koma til. Hann sagði í samtali við Handkastið að endurhæfingin hafi gengið vel og það líti út fyrir það í dag að hann geti mögulega spilað með Stjörnunni í lokaleikjum tímabilsins í mars. Ein umferð er eftir í Olís-deild karla í febrúar en við tekur bikarúrslitin í Powerade-bikarnum. Þrjár umferðir eru síðan leiknar á einni viku í mars. Stjarnan fær KA í heimsókn föstudaginn 6.mars, á mánudeginum fer Stjarnan síðan í Skógarselið og mætir þar ÍR áður en liðið fær Íslands- og bikarmeistarana í Fram í heimsókn, fimmtudaginn 12.mars. Það yrði mikil hvalreki fyrir lið Stjörnunnar að fá endurheimta fyrirliðann sinn til baka en liðið er í harðri baráttu bæði um laust sæti í úrslitakeppninni sem og í mikilli fallbaráttu en mikil spenna er í neðri hluta deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.