Flótti úr Kórnum – Tveir á leið í Hauka?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sigurður Jefferson (Sævar Jónasson)

Samkvæmt heimildum Handkastsins eru tveir leikmenn karla liðs HK á leið til Hauka næsta sumar.

Um er að ræða Hjört Inga Halldórsson sem er uppalinn í Haukum en hefur verið hjá HK síðan sumarið 2020 og línumanninn, Sigurður Jefferson. Sigurður Jefferson hefur stimplað sig inn sem einn besta línumann deildarinnar síðustu tímabil en samningur hans við HK rennur út 2027. Mögulega er hann með ákvæði í samningi sínum.

Ef leikmenn eru með ákvæði í samningi sínum um að geta rift samningi sínum á árinu þá er þeim frjálst að ræða við önnur félög.

Fleiri leikmenn HK gætu verið á förum frá félaginu því bæði Andri Þór Helgason og Leó Snær Pétursson eru að renna út af samningi við HK. Þá rennur samningur Hauks Inga Haukssonar út í sumar en hann hefur verið í viðræðum við önnur félög í Olís-deildinni samkvæmt heimildum Handkastsins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top