Fer Ágúst til Ágústar?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ágúst Guðmundsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa Valur sett sig í samband við örvhentu skyttuna í liði HK, Ágúst Guðmundsson en Valur vill fá leikmanninn fyrir næstu leiktíð.

Ágúst er með samning við HK til ársins 2027 en er samkvæmt heimildum Handkastsins með klásúlu í samningi sínum um að hann geti rift samningi sínum í sumar.

Er Ágúst ætlað að fylla skarð Arnórs Snæs Óskarssonar sem gekk í raðir Vals á miðju tímabili en stefnir á að fara aftur út í atvinnumennsku eftir tímabilið.

Agnar Smári Jónsson er með samning við Val til ársins 2027 en hefur verið í litlu sem engu hlutverki í liði Vals undanfarin ár og þá hefur hann verið að glíma við meiðsli að undanförnu.

Ágúst sem er fæddur árið 2006 hefur verið lykilmaður í íslenska drengjalandsliðinu skipað leikmönnum fæddum 2006 og 2007 en Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals er þjálfari U20 ára landsliðsins ásamt Maksim Akbachev.

Fari Ágúst til Ágústar mætti segja að Ágúst væri að sækja sér liðsmann sinn hjá íslenska U20 ára landsliðinu.

Handkastið greindi frá því fyrr í vikunni að tveir leikmenn HK þeir Hjörtur Ingi Halldórsson og Sigurður Jefferson væru á leið til Hauka eftir tímabilið og þá er Haukur Ingi Hauksson sagður vera á leið til Íslands- og bikarmeistara Fram.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top