ÍR-ingar allt annað en sáttir með ákvarðanir dómarana
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ómar Örn Jónsson (Eyjólfur Garðarsson)

ÍR-ingar sem eru á botni Olís-deildarinnar voru 20-14 yfir þegar 20 mínútur voru eftir af leik liðsins gegn Íslands- og bikarmeisturum Fram í síðustu umferð. Framarar reyndust þó sterkari aðilinn og unnu að lokum tveggja marka sigur.

Breki Hrafn Árnason átti frábæra innkomu í mark Fram og endaði með 60% markvörslu. ÍR-ingar voru hinsvegar allt annað en sáttir með dómara leiksins í nokkrum atvikum undir lok leiks. Farið var yfir nokkur atriði í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Um var að ræða gríðarlega mikilvægan leik fyrir ÍR sem þurfa að fá að minnsta kosti þrjú stig úr fjórum síðustu leikjum sínum í deildinni til að halda sæti sínu í deildinni. Þarna fór gullið tækifæri fyrir ÍR að ná sér í mikilvæg stig í fallbaráttunni sem er sú jafnasta í mörg ár í Olís-deildinni.

Dæmir hver fyrir sig - en atvikin má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top