(Handboltapassinn)
Handkastið greindi frá því fyrr í dag að Nökkvi Guðmundsson leikmaður HBH í Grill66-deildinni hafi fyrr í dag verið dæmdur í þriggja leikja bann af aganefnd HSÍ fyrir brot sitt í leik HBH gegn Hvíta riddaranum í Grill66-deildinni um síðustu helgi. ,,Greinargerð handknattleiksdeildar HBH hefur borist aganefnd sem hefur kynnt sér þau sjónarmið er þar koma fram sem og myndbandsupptökur af leikbrotinu. Telur aganefnd framangreind gögn ekki gefa tilefni til að hverfa frá mati dómara leiksins á leikbrotinu eins og því er lýst í skýrslu dómara," segir í dómi aganefndar. ,,Með vísan til framangreinds er leikmaðurinn úrskurðaður í þriggjað leikja bann, sbr. 10. gr. reglugerðar um agamál. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 11. gr. sömu reglugerðar. Leikbannið tekur gildi kl. 12.00 á hádegi þann 19. febrúar 2026, sbr. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar HSÍ um agamál." Hér að neðan er hægt að sjá brotið hjá Nökkva. Dæmir hver fyrir sig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.