Jón Ásgeir í Val
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jón Ásgeir Eyjólfsson (Sævar Jónasson)

Jón Ásgeir Eyjólfsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Samningurinn tekur gildi frá og með 1.júní. Valur tilkynnir þetta á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.

Um helgina greindi Handkastið frá því fyrst allra miðla að Jón Ásgeir væri á leið í Val. Nú hefur félagið tilkynnt það opinberlega.

Jón Ásgeir, sem er fæddur árið 2002, hefur verið lykilmaður hjá Stjörnunni síðastliðin tímabil. Jón leikur sem línumaður í sókn og inn í miðju varnarinnar.

„Ég er mjög sáttur með að fá Jón Ásgeir til liðs við okkur fyrir næsta tímabil. Ég hef mikla trú á honum jafnt í vörn sem sókn. Hann hefur mikla hæð og styrk sem nýtist beggja megin á vellinum. Eins er hugarfar hans og viðhorf til fyrirmyndar. Ég er viss um að hann muni bæta sig og um leið tekið næsta skref á sínum ferli hjá okkur. Hann er því góð viðbót við okkar leikmannahóp," sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari liðsins.

,,Stjórn handknattleiksdeildar Vals bindur miklar vonir við samstarfið og hlakkar til að sjá hann í Valstreyjunni á næstu keppnistímabilum," segir enn fremur í tilkynningunni frá Val en Jón Ásgeir er uppalinn í Garðabænum og hefur verið í lykilhlutverki hjá félaginu undanfarin ár.

Þetta er annar leikmaðurinn sem yfirgefur Stjörnuna í sumar en Adam Thorstensen fer til Þýskalands í sumar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top