Samkvæmt heimildum Handkastsins virðist FH leiða kapphlaupið um hægri skyttu HK-inga, Ágúst Guðmundsson en Handkastið greindi frá því í síðustu viku að Valur hefði áhuga að fá unglingalansliðsmanninn og leikmann HK til sín í sumar. Ágúst er með samning við HK til ársins 2027 en er samkvæmt heimildum Handkastsins með klásúlu í samningi sínum og gæti yfirgefið félagið í sumar. FH-ingar eru í leit af hægri skyttu fyrir næsta tímabil en Birkir Benediktsson gekk í raðir FH í sumar frá Wakunaga í Japan en Birkir gerði einungis eins árs samning við fimleikafélagið. Ágúst er næst markahæsti leikmaður HK í Olís-deild karla með 97 mörk, þremur minna en Haukur Ingi Hauksson sem einnig er sagður á leið frá HK í sumar en fjölmörg lið í Olís-deildinni hafa sýnt honum áhuga. ,,Ég held ég geti staðfest það að FH leiði kapphlaupið um Ágúst Guðmundsson leikmann FH," sagði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins í nýjasta þætti Handkastsins. ,,Mér líst mjög vel á það ef satt reynist. Það þarf að styrkja liðið og það hefur reynst vel að fá leikmenn úr neðri liðum deildarinnar í FH," sagði Ásgeir Gunnarsson sem var gestur í Handkastinu og mikill FH-ingur. Hann benti á að Garðar Ingi Sindrason væri að yfirgefa FH og þá væri Birkir Benediktsson á eins ár samning við FH sem rennur út í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.