Spáð í spilin fyrir undanúrslitaleikina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Arnór Róbertsson (J.L.Long)

Undanúrslitin í Powerade-bikar karla fara fram á Ásvöllum í kvöld þegar annarsvegar FH og Haukar mætast og síðan ÍR og KA. Fyrri leikur kvöldsins hefst klukkan 18:00 en sá síðari klukkan 20:15.

Handkastið hefur fengið nokkra spekinga til að spá í spilin fyrir leiki kvöldsins.

Einar Jónsson - Þjálfari ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Fram:

FH - Haukar 31 - 32 (Eftir afturlengingu)

Síðasti leikur þessara liða var lélegur en þetta verður allt annað. Hafnarfjarðarslagur af bestu gerð.

ÍR - KA 36-32

KA með mikilvæga menn á meiðslalistanum og það á eftir að reynast þeim erfitt í þessum leik.

Ásbjörn Friðriksson - Fyrrum leikmaður FH:

FH - Haukar 29 - 27

Ég spái 29-27 sigri FH í mjög jöfnum leik. FH er búið að vinna báða leikina gegn Haukum í vetur og það hefur tekist með öflugum varnarleik og markvörslu. Einnig hafa FH verið agaðir sóknarlega og því gefið Haukum fá tækifæri á hraðaupphlaupum sem er þeirra helsta vopn. Haukar náðu áhlaupi í seinasta leik með því að fara í 5-1 vörn og það er spurning hvort að þeir geri það fyrr í þessum leik ef þeir eru eitthvað að leka varnarlega, eða jafnvel komi FH á óvart og byrji í henni.

ÍR - KA 30 - 34

KA er búið að vinna tvo þægilega sigra gegn ÍR á tímabilinu í miklum markaleikjum. Ég spái KA sigri, 34 – 30, en í jafnari leik heldur en deildarleikirnir hafa verið. ÍR-ingar munu mæta sprækir og ungu strákarnir í þeirra liði munu valda KA-mönnum vandræðum fram að seinustu 10 mínútunum þar sem KA menn munu reynast sterkari. Gæðin og reynslan í KA-liðinu er mikil eftir að hafa landað Ágústi Elí og Degi í janúar og því eru þeir til alls líklegir um helgina.

Tandri Már Konráðsson - Leikmaður Stjörnunnar:

FH - Haukar 25 - 26

Það verður afar spennandi að sjá hvernig Haukar mæta til leiks eftir frekar dapra frammistöðu gegn FH í síðustu viðureign þeirra. Ég trúi ekki öðru en að þeir vilji svara fyrir sig. Reikna má með að báðir þjálfarar hafi farið vel yfir leik andstæðinganna og greint þá í þaula. Það gæti leitt til þess að leikurinn verði taktískur og lokaður þar sem varnarleikurinn verður í aðalhlutverki. Markmenn beggja liða munu skipta sköpum í úrslitum leiksins. Liðin munu skiptast á að hafa forystu en Haukarnir munu standa uppi sem sigurvegarar í lokin. Ég tel að breidd Hauka eigi eftir að vega þungt þegar líður á leikinn. Þeir hafa fleiri leikmenn sem geta dreift ábyrgð og álagi og skiptir það mjög miklu máli í jafn hörðum og líkamlegum leikjum eins og Hafnarfjarðarslagirnir hafa yfirleitt verið. Það mun einnig nýtast Haukum að þeir eru mjög kunnugir staðháttum á sínum heimavelli. Það verður algjör veisla að horfa á þennan leik, sérstaklega þegar allt er undir í Hafnarfirði.

ÍR - KA 31 - 33

Ég býst við jöfnun og spennandi leik framan af. Bæði lið hafa sýnt að þau geta keyrt upp hraðann svo allt stefnir í markaleik. Í lokin tel ég að reynsla KA muni vega þyngra og mun reynsla Ágústar Elí vega þar þyngst.

Halldór Jóhann Sigfússon - Þjálfari HK:

FH - Haukar 29-28

Þetta verður alvöru Hafnarfjarðarslagur þar sem töluvert meira er undir en í venjulegum deildarleik. Mér þætti skrýtið ef þetta verður ekki harður leikur með mikið af brottvísunum. Spennustigið verður í hámarki og báðir þjálfarar eiga mikið verk fyrir höndum að halda því á réttum stað. FH hefur varla tapað á Ásvöllum síðastliðinn 10 ár og ég held að það breytist ekki í þessum leik.

ÍR - KA 33 - 35

Eftir sveiflukenndan leik. Ungu strákarnir í ÍR eru frábærir og þeir munu byrja mjög öflugt og vera að vinna með 5 í hálfleik. Held að leikurinn jafnist fljótt í seinni og reynslan er meiri í KA en þar eru leikmenn sem hafa farið alla leið í bikarnum og það mun vega þungt þegar upp er staðið.

Styrmir Sigurðsson - Handkastið:

FH - Haukar 27-27 (31-30 eftir framlengingu)

Er hættur að spá Haukum sigri á FH. FH virðist þola jafna pressuleiki betur en Haukar og það sama verður uppá teningnum i þessum leik. FH jafna leikinn í venjulegum leiktíma og tryggja sér framlengingu þar sem þeir vinna eins marks sigur með troðfulla Ásvelli. Garðar Ingi Sindrason mun taka yfir þennan leik fyrir FH.

ÍR - KA 32 - 36

Þetta verður markaveisla eins og alltaf þegar ÍR á í hlut. Verður Bjarni Ófeigur með og ef svo er hversu mikið getur hann beitt sér? Með eða án Bjarna tel ég KA þó vinna þennan leik og þrátt fyrir 32 mörk fengin á sig mun Ágúst Elí sýna afhverju KA rifu upp veskið og sóttu hann. Leikur sem fer í reynslubankann hjá ungu liði ÍR.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top