Danskur landsliðsmaður snýr heim í sumar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jacob Holm (Skjern Handbold)

Eftir átta tímabil í Þýskalandi og í Frakklandi er komið að því að danski landsliðsmaðurinn Jacob Holm snúi heim til Danmerkur en hann hefur samið við danska úrvalsdeildarfélagið Skjern.

Félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum í gærkvöldi í aðdraganda heimaleiks síns gegn Mors Thy.

Jacob Holm sem verður 31 árs á þessu ári gerir fjögurra ára samning við Skjern en hann lék áður með Ribe-Esbjerg áður en hann gekk í raðir Füchse Berlín og síðan Paris Saint Germain. Jacob Holm er uppalinn hjá Skjern en fór ungur að árum til Ribe-Esbjerg.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top