Þegar upp er staðið þá gæti mér ekki verið meira sama
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Össur Haraldsson (Sævar Jónasson)

Haukar eru komnir í úrslit Powerade-bikarsins eftir sigur á FH í alvöru Hafnarfjarðarslag í undanúrslitum keppninnar á Ásvöllum í kvöld 25-21 fyrir framan troðfulla stúku af stuðningsmönnum liðanna.

,,Við vorum staðráðnir í að mæta til leiks og miðavið deildarleikinn fyrir viku þá var bara ekkert annað í boði. Við vorum með hugan við leikinn alla vikuna og það komst ekkert annað að og við uppskárum í dag fannst mér." sagði Össur Haraldsson leikmaður Hauka við Handkastið eftir sigurinn á FH í undanúrslitum Powerrade bikarsins.

Össur Haraldsson skoraði fimm mörk í dag og var með um það bil 50% skotnýtingu og Össur hefði vilja klára fleiri skot en þegar upp er staðið gæti honum ekki verið meira sama um sinn leik.

,,Ég er með tíu eða níu skot og það er alltaf hægt að finna einhverja svarta punkta hér og þar. Maður hefð"i alveg vilja vera með betri skotnýtingu en þegar upp er staðið þá gæti mér ekki verið meira sama sko."

Haukar leika til úrslita á Laugardaginn og Össur var spurður hvernig liðið ætli að endurheimta fyrir þann leik en liðið mætir annað hvort KA eða ÍR sem eru að leika núna þegar þessi frétt er skrifuð í seinni undarúrslitaleik dagsins.

,,Það er bara gufubað og kaldur pottur, svo bara fundur og örugglega bara kvöldmatur saman og hvílast vel." sagði Össur að lokum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top