Sérfræðingurinn, Einar Ingi Hrafnsson og Guðjón Guðmundsson gerðu upp undanúrslitaleikina í Powerade-bikarnum sem fóru fram á Ásvöllum í vikunni. Haukar og Valur unnu sína leiki kvennamegin á meðan Haukar og ÍR unnu sína leiki karlamegin. Rætt var um nýtt þjálfarateymi Stjörnunnar, umdeildan leikstað bikarúrslitanna og margt fleira í þættinum. Haukar og Valur mætast klukkan 15:30 og Haukar og ÍR klukkan 18:30 annað kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.