Georgíski landsliðsmaðurinn, Giorgi Dikhaminjia vill sennilega gleyma þremur síðustu skotum sínum í eins marks tapi KA gegn ÍR í undanúrslitum Powerade-bikarsins í gærkvöldi. Í stöðunni 31-31 þegar rúmlega tvær mínútur voru eftir af leiknum fékk Georgíumaðurinn í hægra horni KA þrjú tækifæri til að skora og koma KA yfir í leiknum en klikkaði öllum þremur tilraunum sínum. Þetta reyndust síðustu marktilraunir KA í leiknum en ÍR skoruðu sigurmarkið í síðustu sókn sinni í leiknum. Öll þrjú skot Giorgi fékk hann í einni og sömu sókninni á 47 sekúndum. Arnar Daði Arnarsson, þáttastjórnandi Handkastsins velti fyrir sér í uppgjörsþætti Handkastsins hvort um heimsmet væri að ræða. ,,Það er eiginlega bara M&M kallinn, Giorgi sem fer með leikinn fyrir KA. Hann klikkar þremur skotum í sömu sókninni og innan við mínútu sem er mögulega heimsmet. Ég hef aldrei séð þetta áður." ,,Hann var búinn að vera frábær þegar KA kemur sér inn í leikinn en algjörlega galin frammistaða hjá honum í lokin," sagði Guðjón Guðmundsson meðal annars en Giorgi hafði skorað sjö mörk úr 10 skotum fyrir þessi þrjú skot hans í síðustu sókn KA. Hér að neðan er hægt að sjá skotin hjá Giorgi í síðustu sókn KA sem á endanum kostaði liðið sæti í úrslitum Powerade-bikarsins. ÍR og Haukar mætast í úrslitum á morgun klukkan 18:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.