Danskur landsliðsmaður frá næstu vikurnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Danski handknattleiksmaðurinn Mads Mensah verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst í útileik gegn Ribe-Esbjerg HH í síðustu viku.

Mensah þurfti að yfirgefa völlinn eftir samstuð og í kjölfarið leiddi læknisskoðun í ljós minniháttar sinaskaða við hnéskelina. Félag hans, Skjern Håndbold, greindi frá meiðslunum á heimasíðu sinni

Samkvæmt læknateymi félagsins verður Mensah frá í tvær til þrjár vikur hvað varðar varnarleik. Lengri tíma muni þó taka fyrir hann að ná fullum styrk í sóknarleik liðsins.

„Þetta er minniháttar meiðsli og hversu lengi Mensah verður frá fer meðal annars eftir því hvernig sinin bregst við þegar við hefjum markvissa endurhæfingu,“ segir í tilkynningu frá félaginu

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top