Lærisveinar Rúnars Sigtryggssonar í Wetzlar þurftu að sætta sig við fjögurra marka tap á útivelli gegn Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Flensburg vann leikinn 35-31 eftir að hafa verið 20-17 yfir í hálfleik. Patrick Wolz var markahæsti leikmaður vallarins með tíu mörk úr ellefu skotum en Philipp Ahouansou var markahæstur í liði Wetzlar með níu mörk úr sautján skotum. Wetzlar sem eru í mikilli fallbaráttu komust yfir í stöðunni 6-7 en síðan ekki söguna meir og náði Flensburg mest sex marka forskoti í fyrri hálfleik í stöðunni 16-10. Lærisveinar Rúnars gerðu hvað þeir gátu til að gera þetta að alvöru spennuleik og minnkuðu muninn í tvö mörk í stöðunni 30-28 en lengra komust þeir ekki og lokatölur 35-31. Flensburg fer upp í 2.sætið með sigrinum, upp fyrir Fuchse Berlín með 37 stig en Wetzlar er áfram á botni deildarinnar með átta stig, jafn mörg stig og Leipzig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.