Magdeburg leikur sinn annan leik á 48 klukkutímum
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Það er ekkert tekið út með sældinni að vera í atvinnumennsku og hvað þá þegar þú ert í liði í þýsku úrvalsdeildinni og í Meistaradeildinni. Það hafa leikmenn Magdeburg fengið að kynnast oftar en einu sinni síðustu ár.

Aðeins 48 klukkutímum eftir að hafa leikið gegn Wisla Plock í Póllandi í 12. umferð Meistaradeildar Evrópu verður liðið mætt á heimavöll MT Melsungen og leikur þar í 23. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar.

Magdeburg sem hefur nú þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar gerði jafntefli gegn Wisla Plock á fimmtudaginn en Ómar Ingi Magnússon ferðaðist ekki með liðinu til Póllands af persónulegum ástæðum eins og Handkastið hafði áður greint frá. Gert er ráð fyrir því að Ómar Ingi snúi til baka í leikmannahóp Magdeburg í kvöld.

,,Þetta er áhugaverð vika fyrir okkur. Við höfum nú þegar reynslu af þéttu leikjadagskrá. Melsungen eru alltaf erfiðir viðureignar vegna fjölbreytileika þeirra bæði með sjö á móti sex sóknarleik sínum og öðrum taktískum aðgerðum. Við tökumst á við áskorunina og reynum að ná sem bestum árangri," sagði Bennet Wiegert þjálfari liðsins í viðtali á heimasíðu Magdeburg.

Leikur MT Melsungen og Magdeburg hefst klukkan 19:00 í kvöld en á sama tíma mætast Kiel og Gummersbach.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top