Vonast til að leikurinn gegn KA hafi ekki verið síðasti leikurinn fyrir ÍR
{{brizy_dc_image_alt entityId=


,,Þetta er svekkjandi. Við erum komnir í þessa risastóru helgi og þessi umgjörð og það er ótrúlega svekkjandi að geta ekki tekið þátt í þessum leik í kvöld." sagði Baldur Fritz Bjarnason leikmaður ÍR fyrir úrslitaleik ÍR og Hauka sem hefst eftir tæpan klukkutíma. Baldur Fritz getur ekki tekið þátt í l4iknum í kvöld vegna meiðsla sem hann hlaut snemma leiks gegn KA í undanúrslitunum Powerrade bikarsins á fimmtudag.

,,Þetta er mest líklega álagsmeiðsli í ökklanum og það er búið að vera mikið vesen á honum undanfarið en ég satt að segja veit ekki alveg hvað gerist á fimmtudag, ég snéri mig ekki og þetta var engin sérstök hreyfing. Ég var bara hlaupa í vörn eftir fintu og þá finn ég þennan verk og. Ég ætlaði mér að koma aftur inn á. völlinn, adrenalínið var á fullu en svo er þetta bara eins og það er og ég get ekki stígið í fótinn."

Baldur Fritz Bjarnason veit ekki hversu alvarlegt þetta er en hann mun fara í myndartöku eftir helgi og þá kemur meira í ljós en Baldur vonar að leikurinn gegn KA hafi ekki verið hans síðasti leikur fyrir ÍR en Baldur gengur í raðir sænska félagsins, Kristianstad eftir tímabilið.

Viðtalið við Baldur Fritz má sjá í spilaranum hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top