Sigvaldi orðaður við tvö lið í Þýskalandi
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Þýski vefmiðillinn Sport Bild greinir frá því í morgun að tvö lið í þýsku úrvalsdeildinni hafi áhuga að klófesta landsliðsmanninn og leikmann Kolstad í Noregi, Sigvalda Björn Guðjónsson fyrir næsta tímabil.

Félögin sem Sport Bild nefnir er bæði með Íslandstengingar, Gummersbach þar sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar og Hannover-Burgdorf en þar er Heiðmar Felixson aðstoðarþjálfari.

Hannover-Burgdorf er sagt vera í leit að eftirmanni, fyrirliðans Marius Steinhauser, sem gengur aftur til Rhein-Neckar Löwen í sumar en hann hefur verið hjá Hannover-Burgdorf frá árinu 2022.

Hjá Gummersbach eru Þjóðverjarnir, Lukas Blohme og Mathis Haseler en þá hefur Teitur Örn Einarsson einnig leyst hægri hornastöðuna hjá liðinu en hann hefur verið orðaður frá Gummersbach í sumar en samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.

Sigvaldi er með samning við norska félagið Kolstad til ársins 2030 en vegna fjárhagsvandræða félagsins hafa samningsmál lykilmanna félagsins breyst og var Sigvalda gefinn þann kostur að yfirgefa félagið strax í janúar. Hann ákvað hinsvegar að halda um kyrrt en óvissa ríkir þó hinsvegar hvað Sigvaldi gerir eftir tímabilið.

Nú þegar hefur Kolstad misst Andreas Palicka til Wetzlar og Simen Lyse gekk í raðir PSG í Frakklandi í janúar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top