Þakklæti er mér efst í huga – Að geta gefið til baka til félagsins
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Grétar Ari Guðjónsson var besti leikmaður Hauka í úrslitaleiknum í Powerade-bikarnum um helgina þegar Haukar unnu sjö marka sigur á ÍR 28-21. Grétar Ari var með rúmlega 50% markvörslu í marki Hauka sem hélt ÍR í sex mörkum skoruðum í fyrri hálfleik.

,,Það var mjög auðvelt að finna sig vel eftir framan svona vörn og það var mikil ákefð hjá okkur varnarlega," sagði Grétar Ari í viðtali við Handkastið eftir leikinn á laugardaginn.

Grétar Ari gekk óvænt í raðir Hauka í janúar eftir stutta dvöl í Grikklandi en áður hafði hann verið í Frakklandi undanfarin ár. Hvernig er tilfinningin að vera kominn heim og vera orðinn bikarmeistari rúmlega mánuði síðar?

,,Þetta er geggjuð tilfinning. Þakklæti er mér efst í huga. Það eru þvílík forréttindi að vera hér. Ég kom í rauninni beint inn í Final 4 og ég er svo ánægður að geta gefið til baka til félagsins sem hefur gert svo mikið fyrir mig í gegnum allan ferilinn og sérstaklega núna síðustu mánuði." 

Grétar Ari hefur ekki viljað tjá sig í fjölmiðlum um ástæðuna fyrir því að hann kom skyndilega heim en viðurkennir að síðustu mánuðir hafi reynst honum og hans fjölskyldu erfiðir.

,,Það er flókin saga og ég get ekki alveg greint frá henni eins og er núna en það var vitað að staðan væri flókin fyrir 3-4 mánuðum og maður var farinn að horfa í kringum sig og reyna leita af lausnum. Síðan fyrir tilviljun þá hringja Haukarnir í mig svona 2-3 dögum áður ég ætlaði að fara að heyra í þeim og þeir voru að spyrja hver staðan væri á mér og þetta small síðan í kjölfarið eins og þetta hefur alltaf gert hjá Haukunum."

,,Það var lang best í stöðunni að koma heim í Hauka. Ég og frúin höfum verið á miklu flakki og þetta hefur verið mjög erfitt. Hún er ennþá úti í Grikklandi þar sem við erum með tvo hunda sem komast ekki heim til Íslands sem er flókið mál. Það var óska staða að komast heim í smá stöðuleika."

Grétar Ari var í Haukum þegar þeir unnu síðast stóran titil þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2016. Grétar var spurður að því hvort það væri uppskriftin að því fyrir Hauka að vinna titla að vera með Grétar í markinu?

,,Það er ekkert leyndarmál að Haukar hafa verið aðeins neðar en þar sem við viljum vera síðustu ár. Við viljum vinna allt, alltaf. En það er ekkert endilega uppskriftin að hafa mig í markinu, við erum með yngri stráka sem eru miklu hæfileikaríkari en ég nokkurntímann sem þurfa bara reynsluna og smá þolinmæði. Við erum með frábæran hóp og síðan má ekki gleyma Gunnari Magnússyni sem er á sínu fyrsta tímabili með liðið núna. Það þarf eiginlega allt að ganga upp til að verða bikarmeistari, deildarmeistari eða Íslandsmeistari."

Haukar verða í eldlínunni í Olís-deild karla strax í kvöld þegar þeir fara norður og heimsækja nýliða Þórs í 20.umferðinni. Haukar eru í 3.sæti deildarinnar með 26 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Vals. Haukar hafa tapað þremur af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni og tveimur af síðustu þremur. Haukar voru á toppi deildarinnar í byrjun febrúar.

,,Við hálf klúðrum því sjálfir og getum sjálfum um okkur kennt þar. Við erum Haukar og berjumst um alla titla sem hægt er að berjast um. Við munum berjast fyrir deildarmeistaratitlinum en það þarf allt að ganga upp," sagði bikarmeistarinn, Grétar Ari Guðjónsson í viðtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top