Bjarni Ófeigur Valdimarsson leikmaður KA og einn besti leikmaður Olís-deildarinnar á þessu tímabili gæti verið á förum frá félaginu í sumar. Bjarni Ófeigur er á samning við KA til ársins 2027 en samkvæmt heimildum Handkastsins var Bjarni Ófeigur með klásúlu í samningi sínum fyrr í vetur um að rifta samningi sínum sem hann nýtti. Hann hefur verið í viðræðum við KA undanfarnar vikur. Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa þær samningaviðræður dregist heldur á langinn og er Bjarni Ófeigur og KA ekki að ná saman eins og er. Handkastið hefur ítrekað reynt að ná á Bjarna Ófeig og spyrja hann út í þennan orðróm en hann hefur ekki viljað tjá sig eins og er. Bjarni Ófeigur gekk í raðir KA fyrir síðustu leiktíð og er því á sínu öðru ári með félaginu. Hann gerði þriggja ára samning við KA þegar hann gekk í raðir félagsins. Hann var í Cell-tech liði tímabilsins hér á Handkastinu en hann var langbesti leikmaður Olís-deildarinnar fyrir áramót. Meiðsli hafa síðan sett strik í reikninginn hjá honum eftir áramót en framundan er 8-liða úrslit Íslandsmótsins þar sem KA mætir ÍBV. Bjarni Ófeigur lék í Svíþjóð og í Þýskalandi áður en hann gekk í raðir KA fyrir síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.