Sjáðu flautumark Þorsteins Leós úr hægra horninu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þorsteinn Leó Gunnarsson var markahæstur með sex mörk þegar lið hans FC Porto vann BM Granollers 34-33 í næst síðustu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í gærkvöldi. Að auki gaf Þorsteinn Leó þrjár stoðsendingar í leiknum.

Með sigrinum jafnaði Porto Skanderborg og Elverum að stigum í riðlinum með sex stig en Granollers er á botninum með einungis tvö stig.

Þorsteinn Leó reyndist einnig vera hetja liðsins því hann skoraði sigurmark leiksins sekúndu fyrir leikslok úr hægra horninu.

Hægt er að sjá sigurmark Þorsteins Leós hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top