HK reynir við Birki Ben
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa HK-ingar virkilegan áhuga að fá örvhentu skyttuna, Birki Benediktsson til sín frá FH í sumar.

Birkir gekk í raðir FH í sumar og gerði eins árs samning við fimleikafélagið en Birkir gekk í raðir FH frá japanska félaginu, Wakunaga eftir eitt ár þar. Áður hafði Birkir leikið allan sinn feril með uppeldisfélagi sínu Aftureldingu.

Handkastið hefur greint frá því að Ágúst Guðmundsson, unglingalandsliðsmaður og hægri skytta HK er að öllum líkindum á förum frá félaginu í sumar og greindum við frá því á dögunum að FH leiði kapphlaupið um Ágúst.

Nú hefur Handkastið heyrt af því að HK-ingar hafi mikinn áhuga að fá Birki í staðin til sín. Birkir var óviss fyrir tímabilið hvort hann myndi leika í Olís-deildinni en ákvað að lokum að taka slaginn með FH. Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist næstu vikurnar og hvort HK nái að sannfæra þessa reynslu miklu hægri skyttu til að koma í Kórinn fyrir næstu leiktíð en margir leikmenn HK hafa verið orðaðir í burtu frá félaginu í sumar.

Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK er á sínu öðru ári með liðið og hefur framlengt samningi sínum til 2028.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top