Tók snemma ákvörðun um að velja sitt sterkasta lið gegn Svíum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins hefur valið þann leikmannahóp sem tekur þátt í tveimur æfingaleikjum gegn Svíþjóð dagana 19. og 21. mars næstkomandi. Leikirnir fara fram í N1-höllinni á Hlíðarenda og í Kaplakrika.

Reynir Þór Stefánsson leikmaður Melsungen og Ísak Steinsson leikmaður Drammen koma nýir inn í hópinn frá EM verkefninu en Andri Már Rúnarsson fær ekki tækifæri. Bjarki Már Elísson glímir við meiðsli og þá á Ómar Ingi Magnússon von á barni og fær frí í þessu verkefni.

Handkastið tók viðtal við Snorra Stein eftir að hópurinn var tilkynntur sem hægt er að sjá í heild sinni hér að neðan. Hann var spurður fyrst að því hvort hann hafi ekkert viljað taka einhverja sénsa í þessum æfingaleikjum sem framundan eru?

,,Ég valdi mitt sterkasta lið og tók snemma ákvörðun að gera það í þessum glugga. Ef þú ert að tala um áhættur þá eru þær ekki þarna. Maður þarf alltaf að pæla og það að vera kominn inn á HM þá leyfir þú þér að hugsa aðeins lengra fram í tímann. Enn sem komið er þá ætla ég að nálgast þessa landsliðsglugga að einhverju leyti aðeins öðruvísi. Ég er ekki að fara umturna hópnum í maí verkefninu gegn Egyptalandi en ég tók snemma ákvörðun um það að ef ég ætla að taka einhverjar tilraunir þá væri það frekar í maí glugganum."

Viðtalið við Snorra Stein má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top