Kröfurnar eru að vera í fremstu röð í heimi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jón Halldórsson formaður HSÍ segir að viðræður HSÍ við Snorra Stein Guðjónsson landsliðsþjálfara Íslands ganga vel en samningur Snorra við HSÍ rennur út á næstunni.

Jón segir að það sé vilji beggja aðila að halda samstarfinu áfram. Hann vonast til að einhverjar fréttir af samningaviðræðum HSÍ við Snorra Stein verði á næstu dögum. Handkastið ræddi við formann HSÍ um samningaviðræðurnar á dögunum.

,,Við gerum væntingar til þess að við klárum þetta fyrir leikina gegn Svíþjóð. Við erum staddir á þeim stað að við erum bara að fínisera hvernig við viljum sjá framhaldið. Ég ítreka að það er einlægur vilji HSÍ að halda Snorra. Við erum með hárréttan þjálfara á liðinu og hópurinn að ná árangri og mikill stígandi. Það er engin ástæða til að breyta til."

Snorri Steinn hefur verið landsliðsþjálfari Íslands undanfarin þrjú ár í 100% starfi. Hefur HSÍ sett fram einhverjar kröfur á að Snorri verði áfram 100% starfi hjá sambandinu eða stungið upp á einhverjum breytingum hvað það varðar?

,,Kröfurnar sem við leggjum á landsliðsteymið og okkur sjálf er að við ætlum okkur að vera í fremstu röð í heimi. Við vorum á 4.sæti á EM og erum á leið á heimsmeistaramót og við ætlum að vera með þeim allra fremstu í heiminum þá verðum við að hafa umgjörð og allt annað í kringum okkur eins og er hjá þeim bestu, annars drögumst við aftur úr. Öll okkar vinna miðast út frá því að halda okkur áfram í fremstu röð og búa til eins góða umgjörð og við getum í kringum liðið."

Fjárhagsstaða HSÍ hefur mikið verið rædd undanfarna mánuði og ár. Hefur HSÍ efni á því að vera með landsliðsþjálfara í 100% starfi?

,,Fjárhagsstaðan er ennþá flókin og við erum í þeim verkefnum dags daglega að reyna vinna í þeim hlutum og afla tekna. Við erum afrekssamband og ætlum að vera í fremstu röð í heiminum og munum halda þeirri stefnu áfram. Þannig að umgjörðin í kringum landsliðið verður áfram þannig."

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top