Þetta er eins og þegar manni var dömpað 15 ára
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hrun Stjörnunnar í Olís-deild karla er mönnum óskiljanlegt en liðið sem margir spáðu góðu gengi fyrir tímabilið hefur tapað tíu leikjum í röð og er einu stigi frá falli fyrir lokaumferðina í Olís-deild karla.

Liðið hefur unnið einn af síðustu 15 leikjum sínum í deildinni en liðið er með 10 stig í 11.sæti deildarinnar en ÍR er með stigi minna í neðsta sæti deildarinnar. Rætt var um gengi Stjörnunnar í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins en Stjarnan tapaði gegn ÍR í síðustu umferð en sigur eða jafntefli Stjörnunnar í þeim leik hefði fellt ÍR.

,,Ég spilaði með þessu liði og þykir vænt um þetta félag en það sem ég fór að velta fyrir mér er að það er búið að tilkynna þjálfarateymi næsta árs. Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már, Sverrir er í dag aðstoðarþjálfari og er að horfa upp á þetta sem er að gerast. Væri ekki moment að gera eitthvað núna?" velti Stymmi klippari fyrir sér áður en Sérfræðingurinn, Arnar Daði Arnarsson svaraði honum en Arnar Daði var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar fyrir áramót áður en honum var sagt upp störfum í kringum áramótin.

,,Það væri ekkert móment til að gera eitthvað núna."

,,Afhverju ekki? Hefði það verið móment fyrir helgi?” spurði þá Klipparinn.

,,Þegar Sverrir og Tandri voru tilkynntir þá var móment til að gera einhverjar breytingar strax. En úr því sem komið er, alls ekki," svaraði Sérfræðingurinn en í lok febrúar tilkynnti Stjarnan nýtt þjálfarateymi Stjörnunnar fyrir næstu leiktíð. Sverrir Eyjólfsson sem er í dag aðstoðarþjálfari liðsins tekur við liðinu af Hrannari og Tandri Már Konráðsson verður spilandi aðstoðarþjálfari.

,,Ekki það að ég sé að óska eftir því að einhver missi vinnuna sína. Hann er búinn að ákveða það, eða hann segist hafa ákveðið að hætta eftir tímabilið, ég er reyndar ekki alveg sammála honum þar. Ég veit fyrir víst að Stjarnan tilkynnti honum þetta. Þetta er eins og þegar manni var dömpað 15 ára þá sagði maður: Ég ætlaði hvarsem er að hætta með þér. Ég var búinn að ákveða það, ég var bara ekki búinn að segja þér það. Það getur vel verið að hann hafi verið búinn að ákveða að hætta en Stjarnan tilkynnti honum að þeir ætli að fara aðra leið í þjálfaramálum.”

Þarna vitnar Stymmi klippari í viðtal við Hrannar Guðmundsson þjálfara Stjörnunnar eftir 17 marka tap gegn KA á dögunum þar sem hann sagðist hafa tilkynnt stjórn Stjörnunnar af fyrrabragði að hann hafi viljað breytingar og yrði því ekki áfram með liðið á næstu leiktíð.

,,Ég var bara að pæla hvort það væri móment fyrir Tandra og Sverri sem taka við þessu liði af Hrannari eftir tímabilið að ráða sínum eigin örlögum hvernig þetta fer. Ef Stjarnan fer í umspil, ætti stjórnin þá að gera þetta og setja þetta í hendurnar Sverri og Tandra aðeins fyrr en áætlað var?” bætti Stymmi klippari við.

Stjarnan fær Fram í heimsókn í lokaumferð Olís-deildar karla í kvöld og þarf hagstæð úrslit eða treysta því að ÍR nái ekki í stig gegn FH í Kaplakrika á sama tíma. Allir leikir lokaumferðarinnar fara fram klukkan 19:30 í kvöld.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top