Viggó vill ekkert tjá sig um möguleg vistaskipti til Flensburg
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Á dögunum var greint frá því að Viggó Kristjánsson væri í viðræðum við þýska stórliðið Flensburg-Handewitt um að ganga til liðs við félagið. Í fyrstu var talið að hann myndi ganga í raðir Flensburg sumarið 2027 þegar samningur hans við HC Erlangen rennur út.

Í gær bárust hinsvegar nýjar fréttir um að Viggó væri í viðræðum við Flensburg með það í huga að ganga í raðir félagsins strax í sumar og Flensburg myndi kaupa hann frá Erlangen. Handkastið hefur undir höndum mynd af Viggó þar sem hann er staddur í Flensburg á dögunum.

Landsliðsmaðurinn, hefur ekkert viljað tjá sig við Handkastið um þann orðróm að hann sé í viðræðum við Flensburg. Danski landsliðsmaðurinn, Niclas Kirkelökke yfirgefur Flensburg í sumar og gengur í raðir Fredericia í heimalandinu. Félagið hefur ekki enn fyllt það skarð sem Daninn skilur eftir sig hjá félaginu og er því ansi líklegt að Viggó sé talinn vera sá leikmaður sem á að fylla skarð Kirkelökke.

Flensburg er í 2.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir og eru í góðri stöðu að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Það yrði því frábært skref fyrir Viggó að ganga í raðir Flensburg og vera hjá félagi sem leikur í Meistaradeildinni ásamt því að vera í toppliði í þýsku úrvalsdeildinni.

Hen Livgot segir á samfélagsmiðlum sínum að kaupverðið á Viggó sé í kringum 200-250 þúsund evrur.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top