Bjarni óviss hvort hann haldi áfram með ÍR
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Bjarni Fritzson þjálfari ÍR sem féllu úr Olís-deildinni eftir tap gegn FH í lokaumferðinni í gærkvöldi segir að framtíð sín hjá ÍR sé óljós.

Hann var spurður út í framtíðina í viðtali við Vísi strax eftir leikinn í gær.

,,Ég ætla bara að reyna að gera Reykjavík að betri borg, bara byrja á því og sjá hvort það sé ekki hægt að gera aðeins betur þar. Ég er bara ÍR-ingur og ætla bara að halda áfram að vinna að því að hjálpa ÍR að vera frábært handboltafélag. Við erum með einhverja tíu stráka í yngri landsliðunum og erum bara búnir að standa okkur frábærlega í að byggja upp handboltann hjá ÍR og ég verð bara áfram í því," sagði Bjarni meðal annars í viðtali við Vísi er hann var spurður út í framhaldið hjá sér en Bjarni er í 8. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi kosningar.

En þegar hann var spurður út í framhaldið hjá sér sem þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍR hafði hann þetta að segja:

,,Ég bara veit það ekki alveg. Ég hugsa að við setjumst bara niður eftir tímabilið og finnum bara hvað við viljum gera. Eina sem ég veit er að við munum spýta í og gera meira og gera betur, vera faglegri og við erum með mjög unga aðra stráka á leiðinni upp. Við munum bara stíga á bensíngjöfina og líta á þetta sem eina hraðahindrun að draumnum okkar," sagði Bjarni.

ÍR féll með níu stig en Stjarnan endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar með 10 stig og fer í umspil um laust sæti í Olís-deildinni á næsta ári. ÍR var á sínu öðru ári í Olís-deildinni undir stjórn Bjarna.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top