Markahæstu leikmenn Olís deildar karla 2025/2026
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þrátt fyrir að hafa aðeins leikið 19 leiki í Olís-deild karla á tímabilinu er Baldur Fritz Bjarnason leikmaður ÍR markakóngur Olís-deildarinnar annað tímabilið í röð. Baldur skoraði 162 mörk í Olís-deildinni í vetur þar af 61 mark úr vítum.

Bernard Kristján Darkoh liðsfélagi hans í ÍR sem var fjórði markahæstur í deildinni var langmarkahæsti leikmaður deildarinnar ef tekin úr frá mörk skoruð úr vítum. Hann skoraði alls 142 mörk úr opnum leik á tímabilinu.

Arnór Snær Óskarsson leikmaður Vals er 11. markahæsti leikmaður deildarinnar með 114 mörk en hann lék aðeins 14 leiki með Val eftir komu sína frá Kolstad þegar átta umferðir voru búnar af tímabilinu.

Handkastið hefur tekið saman 11 markahæstu leikmenn Olís-deildarinnar tímabilið 2026/2027:

  1. Baldur Fritz Bjarnason (ÍR) - 162 mörk *lék einungis 19 leiki
  2. Hannes Höskuldsson (Selfoss) - 154 mörk
  3. Bjarni Ófeigur Valdimarsson (KA) - 147 mörk *lék einungis 19 leiki
  4. Bernard Kristján Darkoh (ÍR) - 142 mörk *ekkert mark úr vítum
  5. Freyr Aronsson (Haukar) - 134 mörk
  6. Símon Michael Guðjónsson (FH) - 122 mörk
  7. Brynjar Hólm Grétarsson (Þór) - 122 mörk *ekkert mark úr vítum
  8. Jökull Blöndal Björnsson (ÍR) - 122 mörk
  9. Garðar Ingi Sindrason (FH) - 120 mörk
  10. Haukur Ingi Hauksson (HK) - 119 mörk
  11. Arnór Snær Óskarsson (Valur) - 114 mörk *Lék einungis 14 leiki

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top