ÍBV reyndi við handboltapar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Samkvæmt heimildum Handkastsins reyndi ÍBV að fá til sín handboltaparið, Atla Stein Arnarsson og Rakel Oddnýju Guðmundsdóttur fyrir næstu leiktíð.

Atli Steinn sem leikið hefur með Gróttu undanfarin tvö tímabil er í viðræðum við ÍBV og gæti verið á leið til Vestmannaeyja en kærasta hans, Rakel Oddný Guðmundsdóttir vinstri hornamaður Hauka og íslenska landsliðsins sem er uppalin í Vestmannaeyjum ætlar hinsvegar að halda sér á höfuðborgarsvæðinu og leika áfram með Haukum samkvæmt heimildum Handkastsins.

Rakel Oddný lék sinn fyrsta leik með Haukum í Olís-deildinni tímabilið 2019/2020 og hefur hægt og bítandi eignað sér vinstri hornastöðuna hjá Haukum. Hún hefur einnig verið í íslenska landsliðshópnum í undanförnum verkefnum vegna meiðsla Lilju Ágústsdóttur.

Atli Steinn sem er uppalinn í Hafnarfirði og lék með Haukum og FH á sínum yngri árum gekk í raðir Gróttu fyrir síðustu leiktíð. Hann hefur verið að glíma við meiðsli í baki og lék ekkert með Gróttu í upphafi tímabils í Grill66-deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top