Sigvaldi Björn Guðjónsson er á leiðinni í þýsku deildina í sumar eftir að hafa skrifað undir þriggja ára samning við Hannover-Burgdorf. Þar tekur hann við stóru hlutverki í hægra horninu, enda þarf liðið að fylla skarð fyrirliðans Marius Steinhauser sem hefur ákveðið að skipta yfir til Rhein-Neckar Löwen eftir tímabilið. Sigvaldi gengur í raðir Hannover-Burgdorf frá norska félaginu Kolstad. Hann á að baki 86 landsleiki og hefur skorað 230 mörk. Hann hefur verið lykilmaður hjá Kolstad undanfarin ár þar sem hann gegndi fyrirliðastöðu. Þrátt fyrir að hafa verið samningsbundinn norska liðinu langt fram í tímann, eða til ársins 2030. Vegna fjárhagsvandræða Kolstad var ljóst að Sigvaldi gat yfirgefið norska félagið bæði í janúar og eftir tímabilið. Það kom hinsvegar í ljós í byrjun febrúar að Sigvaldi ætlaði sér að klára tímabilið með Kolstad en hann hefur verið orðaður frá félaginu eftir tímabilið. Sigvaldi hefur áður farið víða, spilað með Kielce í Póllandi, Elverum í Noregi og nokkrum dönskum liðum, þar á meðal Aarhus, Bjerringbro-Silkeborg og Vejle þar sem ferillinn hófst. Sigvaldi hefur leikið síðutu fjögur tímabil með Kolstad en hann gekk í raðir félagsins frá Kielce. Það var svo fyrr í mánuðinum sem þýskir miðlar fóru að tengja hann við Hannover-Burgdorf og Gummersbach og eins og svo oft áður reyndist eitthvað til í því. Íslenskir þjálfarar eru á báðum stöðum, Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf og Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach. „Það er eitthvað rétt við þetta,“ segir Sigvaldi sjálfur í tilkynningu. „Að fá tækifæri til að spila í bestu deild í heimi, fyrir framan fulla höll af heimamönnum, er eitthvað sem maður vill upplifa. Ég ætla að njóta hverrar mínútu.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.