Ég held að það sé hollt að horfa ekki of mikið í úrslitin
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslenska karla landsliðið tapaði gegn því sænska í fyrri vináttulandsleik þjóðanna sem fram fór í N1-höllinni að Hlíðarenda í kvöld með tveimur mörkum 33-35.

Strákarnir okkar töpuðu gegn Svíum.

Snorri Steinn Guðjónsson sagði í viðtali við Handkastið eftir leik að hann gæti tekið helling úr þessum leik eins og úr flestum leikjum landsliðsins.

,,Svona strax eftir leik fannst mér við flottir sóknarlega og fengum fullt af færum. Einfalda skýringin á tapinu er markvarslan, eða að Appelgren hafi verið munurinn sérstaklega í seinni hálfleik."

Mikael Appelgren kom í mark Svía í seinni hálfleik og varði níu skot og endaði með 39% markvörslu. Snorri Steinn var á sama tíma ekki nægilega ánægður með varnarleik íslenska liðsins í leiknum.

,,Mér fannst við ekki nægilega góðir varnarlega, við vorum of slitnir og linir á köflum. Mér fannst við vera þannig í gegnum allan leikinn. Auðvitað vorum við að prófa ýmislegt og mér fannst við ekki finna taktinn varnarlega. Það gæti líka skýrt tapið en við fengum fullt útúr þessum leik og prófuðum ýmislegt."

,,Það hefði kannski verið einfaldast að vera með Elvar og Ými í miðjublokkinni allan leikinn en við þurfum að reyna nýta þessa leiki í eitthvað meira en bara að reyna vinna þá."

Björgvin Páll Gústavsson byrjaði í markinu og lék allan fyrri hálfleikinn og endaði með 17% markvörslu. Viktor Gísli Hallgrímsson lék seinni hálfleikinn og endaði með 20% markvörslu. Báðir vörðu þeir fjögur skot. Snorri var spurður út í þá ákvörðun að Björgvin Páll hafi byrjað þennan leik.

,,Þetta eru tveir leikir og við þurfum að finna mínútur fyrir flesta. Bjöggi þekkir þennan völl hérna og mér fannst allt í lagi að prófa hann."

Elliði Snær Viðarsson skoraði sjö mörk af línunni í dag og fiskaði tvö víti. Þá skoraði Arnar Freyr eitt mark og fiskaði auk þess vítakast. Var uppleggið fyrir leik að finna línuna?

,,Það var ekkert endilega uppleggið. Mér fannst línuspilið á köflum mjög gott á EM sem dæmi og Elliði átti nokkra mjög góða leiki þar. Hann virðist ná vel saman við Gísla Þorgeir. Þetta var ekkert sérstakt upplegg en leikurinn þróaðist þannig. Við erum með leikmenn sem finna línumennina ágætlega og Elliði er góður að finna laus pláss. Þetta hefur verið að aukast í síðustu leikjum og það er bara gott."

Þjóðirnar mætast í annað sinn á laugardaginn í Kaplakrika. Verður copy/paste upplegg fyrir þann leik?

,,Neinei, auðvitað ekkert copy/paste. Fyrirfram var ég með smá öðruvísi nálgun á leikina. Ég þarf að horfa á þennan leik og vega og meta. Það verða einhverjar róteringar öðruvísi og eitthvað sem við munum prófa sem við gerðum ekki í þessum leik. Ég held að það sé hollt að horfa ekki of mikið í úrslitin en auðvitað er það helvíti svekkjandi að tapa og við erum á heimavelli og viljum vinna alla leiki," sagði Snorri Steinn að lokum í viðtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top