Sjáðu dramatíkina á Ásvöllum er Stjarnan bjargaði sér frá falli
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Það var mikil dramatík á Ásvöllum í dag þegar annar af tveimur leikjum lokaumferðar Olís-deildar kvenna fór fram. Stjarnan heimsótt þar Hauka en liðið var á botni deildarinnar fyrir umferðina með jafn mörg stig og Selfoss sem var með betri innbyrðisstöðu á milli liðanna.

ÍR tók á móti Selfossi á sama tíma og vann sannfærandi 13 marka sigur 33-20 en Stjarnan þurfti því að minnsta kosti eitt stig úr leiknum gegn Haukum. Það leit ekki vel út í hálfleik þegar Haukar voru sex mörkum yfir 17-11.

En Stjarnan lék töluvert betur í seinni hálfleik og jafnaði metin í fyrsta skipti í stöðunni 22-22. Stjarnan komst þó aldrei yfir í leiknum en Inga Maria Roysdóttir jafnaði metin þegar fimm sekúndur voru eftir af leiknum. Stefán Arnarsson þjálfari Hauka tók þá leikhlé þegar tvær sekúndur voru eftir en enginn var í marki Stjörnunnar á þeim tíma og Haukar höfðu tækifæri til að skora í tómt markið áður en Stefán tók leikhléið.

Þessar lygilegar lokasekúndur er hægt að sjá hér að neðan en með jafnteflinu er ljóst að Selfoss féll úr Olís-deildinni og leikur í Grill66-deildinni á næsta tímabili en Stjarnan fer í umspil um laust sæti í Olís-deildinni, annað tímabilið í röð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top