Handkastið greindi fyrsta allra miðla í gær um skot Ásthildar Berthu Bjarkadóttur leikmanns ÍR í Olís-deild kvenna að HSÍ og meintu kynjamisrétti Handknattleikssambandsins þegar kæmi að auglýsingum og umgjörð í kringum karla og kvenna landsliðið. Skýtur föstum skotum að HSÍ og meintu kynjamisrétti. Þar var sagt frá því að Ásthildur Bertha hafi birt myndskeið á TikTok reikning sinn þar sem hún sýnir mismun HSÍ á því hvernig sambandið auglýsti leik kvenna landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins miðað við hvernig HSÍ auglýsti síðan vináttulandsleiki karla landsliðsins gegn Svíþjóð á dögunum. Við myndbandið sem Ásthildur Bertha birti á TikTok síðu sinni skrifar hún: ,,Undirbúningur og auglýsingar fyrir VINÁTTULANDSLEIKI hjá A-landsliði karla vs undirbúningur og auglýsingar fyrir umspilsleiki að komast inn á STÓRMÓT hjá A-landsliði kvenna" Landsliðskonan, Katrín Tinna Jensdóttir og samherji Ásthildar hjá ÍR var fyrst til að skrifa athugasemd við myndbandið þar sem hún lét þrjú tjákn (e. emoji) duga þar sem tjáknið heldur fyrir annað augað. Fleiri leikmenn í Olís-deild kvenna höfðu skrifað athugasemd við myndbandið og lýst undrun sinni á þessu. Myndbandið hefur fengið yfir 25 þúsund áhorf. Handkastið leitaði svara HSÍ eftir fréttina og sendi skilaboð á framkvæmdastjóra HSÍ, Sólveigu Jónsdóttur sem er stödd erlendis þar sem hún er viðstödd sinn fyrsta framkvæmdastjórafund EHF. ,,Mín viðbrögð eru, hafa alltaf verið og verða alltaf áfram stelpur. Ég þekki það vel að berjast í þessum heimi og ber virðingu fyrir öllum þeim sem standa upp fyrir sjálfum sér," sagði Sólveig og bendir á að hún hafi verið afrekskona í íþróttum og berist fyrir konum í íþróttum í 25 ár. ,,Við erum að skoða þessi mál hjá okkur og velta upp hvar við getum bætt okkur og gert betur í okkar heldur betur pökkuðu dagskrá," bætti Sólveig við og bendir á að HSÍ hafi verið að halda hvern viðburðinn á fætur öðrum undanfarnar vikur. ,,Við erum að reyna eftir allra fremsta megni að leyfa hverjum viðburði fyrir sig að njóta sín á miðlunum okkar. Það er ákveðin kúnst og við erum alltaf tilbúin að hitta fólk og ræða hvað og hvernig við getum gert betur. Eftir sem áður, þá er öllum frjáls að heyra í mér, tek öllum samtölum fagnandi og hlakka mikið til að fara í næsta verkefni með kvennaliðinu okkar. Áfram Ísland og áfram stelpur í Færeyjum og svo troðfyllum við öll Ásvelli 12. apríl og styðjum þær vonandi inn á EM," sagði framkvæmdastjóri HSÍ, Sólveig Jónsdóttir að lokum. Íslenska kvennalandsliðið á tvo leiki eftir í undankeppni Evrópumótsins þar sem liðið mætir fyrst Færeyjum ytra og fær síðan Portúgal í heimsókn á Ásvelli, 12.apríl. HSÍ setur stefnuna á að ná góðri mætingu á þann leik sem gæti verið sá leikur sem myndi tryggja íslenska landsliðinu á Evrópumótið síðar á árinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.