Úrslitakeppnin í Olís-deild karla hófst með látum í gærkvöldi þegar fyrstu tveir leikir 8-liða úrslitanna fóru fram. KA hafði betur gegn ÍBV eftir tvíframlengdan leik í Vestmannaeyjum og deildarmeistarar Vals höfðu betur gegn HK á heimavelli eftir framlengdan leik. HK-ingar voru allt annað en sáttir með dómgæsluna í þeim leik og sendi Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK dómurum meðal annars tóninn í viðtali við mbl.is eftir leik. ,,Þegar við vorum fimm mörkum yfir og með leikinn í lás breyttist dómgæslan. Það voru allt of mörg atriði sem voru þeim í hag. Þeir fá að komast inn í leikinn. Arnór átti t.d. að fá á sig ruðning þegar það var dæmt mark og það voru fullt af atvikum. Gústi var jarðaður hinum megin og það var ekkert dæmt. Það voru alls konar hlutir sem voru ekki eins fyrir bæði lið. Þessi dómgæsla kom þeim inn í þetta," sagði Halldór Jóhann meðal annars í viðtalinu við mbl.is en þar er einnig greint frá því að Halldór Jóhann hafi talað við annan af dómurum leiks þar sem greinilega hafi verið heitt í hamsi eins og stendur í fréttinni. ,,Ég hvatti hann til að horfa á síðustu fimmtán mínúturnar í leiknum. Þegar við náðum þessari forystu fer leikurinn í fangið á þeim. Það gæti vel verið að ég standi hérna og er að tuða en þetta voru svo mörg atriði. Þeir komast auðveldlega inn í leikinn með hjálp. Þetta var bara á einn veginn og við fengum ekkert hinum megin, ekki neitt,“ sagði hann. Undirritaður hefur horft á leikinn aftur og getur tekið undir orð Halldórs Jóhanns en í stöðunni 24-27 fyrir HK þegar rúmlega 12 mínútur eru eftir af leiknum og fram að leikslokum fyrir framlenginguna er auðveldlega hægt að benda á sjö atvik sem féllu alls ekki með HK-ingum og tvö af þeim er á hreinni íslensku kolrangur dómur sem féll með Val. Það sem fór einnig í taugarnar á bæði leikmönnum og stuðningsmönnum HK er að dómarapar leiksins voru þeir Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson sem eru uppaldnir Valsarar sem léku upp alla yngri flokka Vals. Undirritaður benti nokkrum kunningjum á þetta í fyrri hálfleik og velti því fyrir sér hvort þetta væri ekki frekar spes, vissulega væri ekkert sem bannaði þetta en hvort þarna væri ekki verið að leika sér að eldinum þar sem einungis tveir leikir væru á dagskrá og vel hægt að setja annað dómarapar á þennan leik og sett þetta umrædda dómarapar á aðra leiki í sömu umferð. Handkastið hafði samband við Reyni Stefánsson formann dómaranefndar og spurði hann út í þá ákvörðun dómaranefndar að setja Valsarana, Árna Snæ og Þorvar Bjarma á leik Vals og HK í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. ,,Dómaranefndin gaf það út fyrir tímabilið að þeir dómarar sem dæma fyrir EHF myndu dæma alla leiki, óháð því úr hvaða félagi þeir koma, að því gefnu að þeir treysti sér sjálfir til þess. Þetta fyrirkomulag hefur jafnframt verið við lýði undanfarin ár og er í samræmi við 7. grein reglugerðar um dómara og eftirlitsmenn, þar sem kveðið er á um að EHF-dómurum sé heimilt að dæma hjá hvaða félagi sem er. Sú breyting sem nú hefur orðið er að eitt EHF-dómarapar hefur bæst við þennan hóp hjá okkur. Engin atvik hafa komið upp sem benda til annars en að þetta fyrirkomulag gangi vel og standist allar kröfur," sagði Reynir í skriflegu svari sínu til Handkastsins. HK og Valur mætast öðru sinni í Kórnum á sunnudaginn og gera má ráð fyrir að mikil pressa verði á dómaraparinu sem dæmir þann leik. Ólíklegt er þó að Árni Snær og Þorvar Bjarmi dæmi þann leik, en hver veit?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.