Undarlegt atvik og í raun út í hött – Vanvirðing við okkar góðu stuðningsmenn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Seinni hálfleikur í leik FH og Fram í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins sem fram fór í Kaplakrika í gærkvöldi seinkaði um nokkrar mínútur vegna afar undarlegrar ástæðu. FH vann leikinn 28-26 og er komið 1-0 yfir í einvíginu og geta tryggt sér í undanúrslit með sigri á mánudagskvöldið þegar liðin mætast í annað sinn.

Ástæðan fyrir seinkuninni var sú að stuðningsmannasveit Fram var meinað að sitja á ákveðnum stað í stúkunni fyrir aftan varamannabekk FH-inga. Seinni hálfleikurinn fór ekki af stað fyrr en stuðningsmannasveit Fram hafði fært sig aftur á sama stað og hún hafði verið á, í fyrri hálfleik.

Stuðningsmannasveit Framara var með trommur upp í stúku í fyrri hálfleik eins og gengur og gerist, út í enda á vallarhelming FH-inga. Í hálfleik færðu þeir sig yfir á hinn vallarhelminginn og ætluðu greinilega að vera aftur nær bekk FH. Þeir voru beðnir af gæslumönnum um að færa sig ofar í stúkuna, sem þeir gerðu.

Þegar leikurinn átti að byrja aftur kom hinsvegar fát á ritaraborðið. Í kjölfarið kallaði Hlynur Leifsson eftirlitsmaður leiksins á dómarana og skipaði síðan stuðningsmönnunum að færa sig fyrir aftan bekk Framara. Það myndaðist mikil ringulreið á bæði á FH bekknum og við ritaraborðið og það var greinilega einhver sem tók ákvörðun um að flauta leikinn ekki aftur á fyrr en stuðningsmennirnir höfðu fært sig.

Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Hörður Magnússon og Einar Ingi Hrafnsson lýstu leiknum og vissu varla hvað væri að eiga sér stað á þessum tímapunkti enda ekki algengt að hópur stuðningsmanna á handboltaleikjum væri bannað að sitja á ákveðnum stað sem er þó ætlaður áhorfendum.

Geðþótta ákvörðun

Handkastið hafði samband við Gísla Frey Valdórsson formann handknattleiksdeildar Fram sem var á vellinum í gær og spurðu hann út í málsatvik og hans skoðun á því að stuðningsmönnum Fram hafi ekki verið frjálst að sitja hvar sem er, í stúkunni sem var þó ætlað Frömurum.

,,Þetta var undarlegt atvik og í raun út í hött að þetta hafi orðið til þess að fresta leiknum um einhverjar mínútur. Við erum komin inn í úrslitakeppni Olís-deildarinnar og öll lið eru að hvetja stuðningsmenn sína til að mæta á völlinn til að skapa stemningu í kringum keppnina. Þá er hér, í miðjum leik, tekin einhver ákvörðun um það hvar tilteknir stuðningsmenn mega eða mega ekki sitja. Þarna er um einhverja geðþótta ákvörðun að ræða enda virðist hún ekki byggja á neinum reglum," sagði Gísli Freyr sem var greinilega hissa yfir þessu atviki.

,,Stuðningsmönnum liða er úthlutað eitthvað svæði í stúku og mega dreifa sér eins og þeim sýnist innan þess svæðis. Í þessu tilviki höfðu stuðningsmenn Fram fært sig ofar í stúkunni, einmitt til að sýna FH-ingum þá kurteisi að vera ekki alveg ofan í bekknum. Það var þó ekki nóg og leikurinn ekki flautaður á fyrr en þeir höfðu fært sig í hinn endann í stúkunni. Mér finnst það vanvirðing við okkar góðu stuðningsmenn. Hvorki einstaka lið né dómarar eða eftirlitsmenn geta verið litlir í sér yfir því að fólk láti í sér heyra á pöllunum, auðvitað svo lengi sem það er innan skynsamlegra og siðlegra marka," sagði Gísli og bendir á að það hafi ekki verið hans upplifun að stuðningsmenn Fram hafi sýnt óíþróttamannslega hegðun.

,,Auðvitað vilja allir að stuðningsmenn séu kurteisir og ég hef ekki orðið var við annað en að stuðningsmenn Fram séu það. Ég vona bara að stuðningsmenn FH mætir gallvaskir upp í dal draumanna á mánudaginn og láti í sér heyra, líkt og þeir gerðu í fyrra án þess að nokkur gerði athugasemd við það," sagði Gísli Freyr Valdórsson formaður handknattleiksdeildar Fram í samtali við Handkastið.

Hver kallaði eftir þessu?

Rætt var um atvikið í lok nýjasta uppgjörsþáttar Handkastsins.

,,Við erum í meistaraflokki, við erum í Olís-deildinni, við erum í úrslitakeppni, í stóru íþróttahúsi þar sem það má sitja hvar sem er og þetta er tekið fyrir. Ég þarf ekki að ræða þetta mikið meira, þarna fer bara hljóð og mynd ekki saman. Seinni hálfleikurinn seinkaði um einhverjar fimm mínútur," sagði Arnar Daði Arnarsson meðal annars þegar rætt var um málið í Handkastinu.

,,Ég átta mig ekki á því hver kallar eftir þessu, líklega er það FH en ég hef ekki hugmynd um það. Mér fannst Aron Pálmarsson vera frekar léttur yfir þessu þegar hann var að ræða við Einar Jónsson þegar þetta var í gangi," bætti Stymmi klippari við.

Nánar var rætt um þetta í uppgjörsþætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top