Afhverju fór Óskar Bjarni og Gaupi ekki bara á flautuna – Þetta var þvílíkur skandall
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Það er ekki á hverjum degi sem þríeykið í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni ræða Þjóðaríþróttina en það var undantekning á því í nýjasta þætti þeirra sem kom út í morgun.

Umræðan snerist um dómgæsluna í leik Vals og HK í fyrst leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins sem Valur vann eftir framlengdan leik 42-38 eftir að hafa verið mest fimm mörkum undir um miðbik seinni hálfleiks í stöðunni 21-26. Í kjölfarið hófst atburðarrás sem sennilega enginn getur verið stoltur af en hver dómur á fætur öðrum féll með Val sem hjálpaði liðinu að tryggja sér í framlengingu.

EHF dómarar geta dæmt alla leiki - Að því efnu að þeir treysti sér sjálfir til þess

Handkastið fjallaði um málið í gær þar sem Reynir Stefánsson formaður dómaranefndar svaraði fyrir þá gagnrýni að dómarapar leiksins, Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson væru uppaldnir Valsarar.

Gústi Jó hefur skammast sín

,,Ég viðurkenni það, ég horfði á þennan leik og ég var mjög ánægður með sigurinn en síðan eftir á, þá hugsaði ég með mér að ég væri nú ekkert rosalega ánægður með sigurinn. Ég sem Valsari vorkenndi HK ekkert eðlilega. Ég man ekki eftir að hafa séð svona dómgæslu áður," sagði Ríkharð Óskar Guðnason þáttastjórnandi Þungavigtarinnar.

,,Ég held að Gústi Jó. (Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals) hafi skammast sín svo mikið, ég sá ekki eitt viðtal við hann eftir leikinn. Björgvin Páll mætti í viðtal og gerði ekkert annað en að hrósa HK. Það er bara fínt en þeir þurftu nú kannski ekkert á því að halda, þeir voru bara fínir í þessum leik en Bjöggi var bara vandræðalegur, eðlilega. Hvaða dómgæsla var þetta? Síðan kemur það í ljós, að þetta eru uppaldnir Valsarar sem spiluðu upp alla yngri flokka hjá Val og þegar úrslitakeppnin í körfunni er í gangi þá eru þessir tveir fremstir í Valsbúningnum á vellinum. Þetta er ótrúlegt, afhverju fór Óskar Bjarni og Gaupi ekki bara á flautuna? Hvað er HSÍ að pæla? var þetta eitthvað djók? Þeir dæmdu Val sigurinn í þessum leik. Ef ég væri formaður HK væri ég búinn að kæra þennan leik," sagði góðvinur Handkastsins, Mikael Nikulásson sem var áhorfandi á leiknum í Valsheimilinu.

,,Ég var á þessum leik og þetta var mesti dómaraskandall (sem ég hef séð). Ef þessir dómarar dæma meira í úrslitakeppninni þá tryllist ég. Bara burtu með þetta lið og hvað er HSÍ að pæla? Á bara að koma Val í undanúrslitin? Þetta var ömurleg dómgæsla og ömurleg auglýsing fyrir úrslitakeppnina," sagði Mike meðal annars en hann benti á að dómgæslan hafi verið allt í lagi í fyrri hálfleik en benti síðan á glórulausa brottvísun sem HK fékk undir lok fyrri hálfleiks. Þar segir Mike að ballið, svokallaða hafi byrjað.

HSÍ til þvílíkra vansa

,,Þegar HK var komið fimm mörkum yfir, 26-21 þá hafi dómarnir séð að sitt lið væri mögulega að detta úr keppni í úrslitakeppninni. Ég ætla ekki að væna þá um að hafa fengið einhverja seðla í vasann en þeir hafa hugsað að þeirra lið væri að fara detta úr leik, hvernig reddum við því? Jú, dæmum bara víti í hverri einustu sókn og dæmum aldrei þegar brotið er á HK. Þetta var þvílíkur skandall og HSÍ til þvílíkra vansa. Það er eins gott að það verði góðir dómarar á leiknum á sunnudaginn," sagði Mikael að lokum en liðin mætast öðru sinni í Kórnum á sunnudaginn þar sem HK þarf á sigri að halda annars er liðið komið í sumarfrí.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top