Sjáðu þegar Einar Andri kvartaði yfir áhorfendum Fram sem brutu engar reglur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Seinni hálfleikur í leik FH og Fram í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins sem fram fór í Kaplakrika í gærkvöldi seinkaði um nokkrar mínútur vegna afar undarlegrar ástæðu. FH vann leikinn 28-26 og er komið 1-0 yfir í einvíginu og geta tryggt sér í undanúrslit með sigri á mánudagskvöldið þegar liðin mætast í annað sinn.

Ástæðan fyrir seinkuninni var sú að stuðningsmannasveit Fram var meinað að sitja á ákveðnum stað í stúkunni fyrir aftan varamannabekk FH-inga. Seinni hálfleikurinn fór ekki af stað fyrr en stuðningsmannasveit Fram hafði fært sig aftur á sama stað og hún hafði verið á, í fyrri hálfleik.

Í myndbandi sem Handkastið hefur undir höndum og hægt er að sjá hér að neðan sést þegar Einar Andri Einarsson einn af þjálfurum FH fer til Hlyns Leifssonar eftirlitsmann leiksins í hálfleik og ræðir við hann. Í kjölfarið fer Hlynur til dómara leiksins eftir það fer hann síðan í átt að stuðningsmönnum Fram þar sem stuðningsmannasveit Framarar er beðin um að færa sig.

Fjallað var um málið á Handkastinu fyrr í dag:

UNDARLEGT ATVIK OG Í RAUN ÚT Í HÖTT – VANVIRÐING VIÐ OKKAR GÓÐU STUÐNINGSMENN

Vísir hefur einnig fjallað um málið þar sem Hlynur Leifsson eftirlitsdómari leiksins tjáir sig um málið. Samkvæmt heimildum Handkastsins hafði Hlynur allt önnur rök fyrir máli sínu í leiknum sjálfum og hefur Handkastið heyrt í mönnum sem tengjast leiknum sem staðfesta að Hlynur hafi sagt að áhorfendum væri meinað að færa sig í miðjum leik. Var Hlynur beðinn um að sýna þær reglur en þá hafi verið fátt um svör.

Í frétt Vísis segir að Vísir hafi haft samband við formann dómaranefndar HSÍ, Reyni Stefánsson, sem sagði stuðningsmenn Fram ekki hafa brotið neinar reglur um sætisskipan. Þeir hefðu verið í sinni stúku og ekki með trommurnar beint fyrir aftan ritaraborðið, sem er bannað. Þeir hafi vissulega verið með of margar trommur, aðeins ein er leyfileg, en eftirlitsmaðurinn setti ekkert út á það heldur bara sætisvalið.

Vísir hafði einnig samband við eftirlitsmanninn sjálfan, Hlyn Leifsson sem óskaði eftir því að svara fyrirspurn Vísi skriflega.

„Um þetta atriði sem þú spyrð um er m.a. fjallað um í reglugerð um handknattleiksmót. Þar er ákvæði sem segir að bannað sé að vera með trommur og/eða lúðra fyrir aftan ritara- og tímavarðaborð og skiptisvæði liða. Þetta er ekkert nýtt og hefur verið í gildi í fjölda ára. Í leikhléinu (hálfleiknum) kemur ábending frá ábyrgðarmanni leiks og starfsmanni á bekk FH að stuðningsmenn Fram sem eru með trommur séu að færa og staðsetja trommurnar á þann hátt að það sé í andstöðu við reglur. Óskað var eftir því við þessa stuðningsmenn Fram sem voru með trommurnar að þeir staðsettu sig þannig að það bryti ekki í bága við reglur. Þeir verða ekki við þeirri beiðni. Leikmaður Fram segir þeim svo að færa sig og þá gera þeir það,“ svaraði Hlynur. 

Hér er hægt að sjá skjáskot úr reglugerð um handknattleiksmót sem Hlynur vísar í:

Í myndbandinu hér að neðan þar sem sést þegar Einar Andri Einarsson sem er þá sennilega starfsmaðurinn á bekk FH sem Hlynur vitnar í, fer til Hlyns í hálfleiknum. Í myndbandinu sést hinsvegar bersýnilega að Hlynur Leifsson hefur rangt fyrir sér varðandi staðsetningu stuðningsmannasveitar Fram þar sem það fer ekki framhjá nokkrum manni nema þá honum sjálfum að stuðningsmannasveit Fram situr hvorki fyrir aftan ritaraborðið né nálægt skiptisvæðum liðanna.

Í myndbandinu sést því vel að stuðningsmenn Fram brutu engar reglur þrátt fyrir að Hlynur haldi öðru fram.

Fram og FH mætast í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á mánudagskvöldið í Úlfarsárdalnum og það verður fróðlegt að sjá hvort stuðningsmenn beggja liða detti það í hug að hreyfa sig á meðan á leik stendur og hvort starfsmenn liðanna verði með puttann á púlsinum hvar allir stuðningsmenn liðanna sitja frá upphafi til enda.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top