Valsarar geta þakkað sínum félagsmönnum fyrir að hafa unnið síðasta leik
Egill Bjarni Friðjónsson

Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK og lærisveinar hans eru komnir í sumarfrí eftir tap gegn Val á heimavelli í kvöld með fjórum mörkum 28-32.

Fyrri leikur liðanna vann Valur eftir framlengdan leik og leikurinn í dag var í járnum meira og minna allan leikinn. Valsarar reyndust þó sterkari aðilinn undir lok leiks.

,,Það sem ég tek úr þessu einvígi er að við sýndum frábæra frammistöðu. Mér fannst Valsarnir góðir í dag og við vorum það líka. Það kemur kafli í seinni hálfleik þar sem við erum að klikka svolítið og erum ekki að ná að skora úr færunum okkar. Það var í rauninni munurinn og við erum of lengi til baka og náum ekki að stöðva þá á sama tíma. Annars er leikurinn í járnum allan tímann," sagði Halldór Jóhann meðal annars í viðtali við Handkastið eftir leik.

Mikið var rætt og ritað um dómgæsluna í fyrri leik liðanna þar sem Valsarnir, Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson, EHF dómarar dæmdu en HK-ingum fannst þeir voru rændir sigrinum í þeim leik með mörgum vafasömum dómum á síðustu mínútum leiksins. Hafði það áhrif á undirbúninginn fyrir leikinn í dag?

,,Við ætluðum að nota þetta sem bensín á okkur og ætluðum ekki að gera okkur að einhverjum fórnarlömbum. Auðvitað var þetta hræðilegt dæmi og Valsarar geta þakkað sínum félagsmönnum fyrir að hafa unnið þann leik. Það er helvíti súrt að hafa spilað jafn góðan leik og átt í rauninni skilið að vinna en það er tekið frá þér. Það er ljóst að það er erfitt að vinna Val marga leiki í röð. Ég hefði viljað fá þriðja leikinn í þetta einvígi á fimmtudaginn sem mér fannst við eiga rétt á, miðað við hvernig þetta var. Það þýðir ekkert að hugsa um það, bara til hamingju Valur með að vera komnir í undanúrslit," sagði Halldór Jóhann sem var spurður út í framhaldið og breytingarnar á leikmannahópi HK í sumar.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top