Ágúst Guðmundsson hægri skytta HK undanfarin tímabil og unglingalandsliðsmaður hefur leikið sinn síðasta leik fyrir uppeldisfélagið sitt og gengur í raðir FH í sumar. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið. Síðasti leikur Ágústs með HK var í gærkvöldi er liðið tapaði á heimavelli gegn Val í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Ágúst var næst markahæsti leikmaður HK á tímbilinu á eftir Hauki Inga Haukssyni sem einnig hefur verið orðaður frá HK síðustu vikur. Ágúst var meðal markahæstu leikmanna HK í einvíginu gegn Val með átta og sex mörk í leikjunum tveimur. Það verður erfitt fyrir Halldór Jóhann Sigfússon að fylla það skarð sem Ágúst skilur eftir sig en Dagur Sverrir Kristjánsson leikmaður Vinslövs í sænsku B-deildinni hefur verið orðaður við HK auk Birkis Benediktssonar leikmanns FH. Ágúst staðfesti í samtali við Handkastið að hann hafi nú þegar gert þriggja ára samning við FH og gangi til liðs við félagið strax í sumar. Ágúst fetar þar með í fótspor Einars Braga Aðalsteinssonar og Símons Michaels Guðjónssonar sem báðir gengu í raðir FH á sínum tíma frá HK. FH verður í eldlínunni í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í kvöld í Úlfarsárdalnum þegar liðið heimsækir Fram. FH leiðir í einvíginu 1-0.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.