

Viggó Kristjánsson hefur samið við Flensburg og gengur til liðsins sumarið 2027. Íslenski landsliðsmaðurinn sem leikur með Erlangen hefur samkvæmt heimildum samið við þýska stórliðið Flensburg frá og með sumarinu 2027, þegar samningur hans við Erlangen rennur út. Handkastið greindi fyrst frá þessu á dögunum þegar sást til Viggó í Flensburg, sennilega að skoða aðstæður. Viggó vildi lítið tjá sig um mögulega félagsskipti á þeim tíma en núna virðist allt hins vegar vera orðið klappað og klárt. Flensburg er í 2.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir og eru í góðri stöðu að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Það yrði því frábært skref fyrir Viggó að ganga í raðir Flensburg og vera hjá félagi sem leikur í Meistaradeildinni ásamt því að vera í toppliði í þýsku úrvalsdeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.