Hefði viljað fá meira framlag frá fleirum
Sævar Jónasson

Gunnar Magnússon þjálfari Hauka þurfti að sætta sig við sex marka tap gegn FH í fyrsta undanúrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn sem fram fór í Kaplakrika í kvöld.

Gunnar sagði að sóknarleikurinn hafi farið með leikinn í viðtali við Handkastið eftir leik.

,,Þessi leikur tapast sóknarlega, sérstaklega í seinni hálfleik. Við skorum of lítið og of margir tapaðir boltar og förum illa með þau færi sem við vorum að skapa. Tilfinningin mín núna er að við sköpuðum betri færi en þeir í leiknum en það dugar ekki. Við setjum þetta ekki í netið og síðan fá þeir auðveld mörk eftir klaufamistök hjá okkur."

,,Spennustigið og þeir eru með góða markmenn. Jón Þórarinn er mögulega Match winnerinn í kvöld og við vorum að fá þessi færi en verðum að klára þau en þetta er hluti af leiknum."

Það var mikið lagt á herðar Freys Aronssonar í sóknarleik Hauka í leiknum í kvöld en Freyr skoraði sjö mörk í leiknum og skapaði átta færi.

,,Það er oft þannig en auðvitað hefði ég viljað fá meira framlag frá fleirum. Ég þarf að játa það," sagði Gunnar.

Liðin mætast aftur á föstudaginn á Ásvöllum í öðrum leik liðanna. Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top