
Eins og Handkastið greindi frá í gær var leikmönnum Aftureldingar tilkynnt af stjórnarmönnum að þjálfara liðsins, Stefáni Árnasyni hafi verið sagt upp störfum. Stefán Árnason var að ljúka sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari liðsins en hann hefur starfað í Mosfellsbænum í fjögur ár en áður var hann aðstoðarþjálfari Gunnars Magnússonar hjá Aftureldingu. ÞJÁLFARABREYTINGAR Í MOSÓ – STEFÁNI SAGT UPP Handkastið hafði heyrt af því í langan tíma að þjálfarasæti Stefáns í Mosfellsbænum væri heitt en einhver óánægja ríkti meðal leikmanna um störf Stefáns. Þá hafði gengi liðsins ekki verið sem skyldi eftir áramót en liðið vann aðeins einn leik af þeim sjö sem liðið spilaði í Olís-deildinni í vetur. Þá féll liðið úr leik í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar eftir tap gegn Haukum í oddaleik í síðustu viku. Samkvæmt heimildum Handkastsins er talið líklegt að Hrannar Guðmundsson fyrrum þjálfari Stjörnunnar taki við Aftureldingu. Hrannar er uppalinn í Aftureldingu og býr í Mosfellsbænum. Nafn hans hefur áður komið upp þegar rætt er um þjálfarastarfið í Mosfellsbænum en hann tengist vel mönnum innan stjórn handknattleiksdeildar Aftureldingar. Bróðir hans, Haukur Guðmundsson er einnig leikmaður Aftureldingar. Hrannar hafði stýrt karlaliði Stjörnunnar síðustu þrjú tímabil en var rekinn eftir tímabilið, nokkrum dögum áður en umspilið um laust sæti í Olís-deildinni hófst þar sem Stjarnan mætti Fjölni. Stjarnan endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar á tímabilinu og tók Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már Konráðsson við liðinu af Hrannari en áður hafði verið tilkynnt að þeir myndu taka við liðinu eftir tímabilið. Undir stjórn Hrannars tapaði Stjarnan öllum leikjum sínum í seinni umferðinni í Olís-deildinni og bjargaði sér frá falli í lokaumferðinni eftir að ÍR tapaði gegn FH.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.