Fimm þjálfarar sem gætu tekið við Aftureldingu
Egill Bjarni Friðjónsson

Stefáni Árnasyni þjálfara Aftureldingar var í vikunni sagt upp störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins. Stefán stýrði liðinu í eitt ár en var aðstoðarþjálfari liðsins í þrjú ár á meðan Gunnar Magnússon var þjálfari liðsins.

Afturelding staðfestir uppsögn Stefáns.

Handkastið ákvað að búa til fimm manna lista af sem gætu verið mögulegir kandídatar að taka við liðinu. Það skal þó tekið fram að þetta er einungis til gamans gert og eingöngu laufléttar bollaleggingar.

Fimm þjálfarar sem gætu tekið við Aftureldingu

Jónatan Magnússon
Þjálfari kvennaliðs KA/Þórs og stýrði karlaliði KA á undan því. Var á leið til Svíþjóðar að taka við liði í sænsku úrvalsdeildinni fyrir tveimur sumrum en hætti við á lokametrunum. Nafn hans hefur komið upp í umræðunni og líklegan kandídat til að taka við Aftureldingu. Samkvæmt heimildum Handkastsins er nafn hans á lista stjórnar Aftureldingar.

Hrannar Guðmundsson
Var rekinn frá Stjörnunni á dögunum eftir að hafa stýrt liðinu í þrjú ár. Stjarnan endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar og var Hrannari sagt upp störfum rétt áður en umspilið um laust sæti í Olís-deildinni hófst. Samningur hans við Stjörnuna átti að renna út í sumar og var búið að gefa það út að hann yrði ekki áfram. Er sagður líklegastur til að taka við liðinu en hann er uppalinn í Mosfellsbænum og hefur áður verið í þjálfarateymi Aftureldingar þegar Einar Andri Einarsson var við stjórnvölinn. Þekkir vel til í Mosfellsbænum og þekkir vel stjórnarmenn Aftureldingar.

Einar Andri Einarsson
Gerði frábæra hluti í Mosfellsbænum á sínum tíma og gerði liðið að stabílu úrvalsdeildarliði en hann stýrði Aftureldingu í sex ár. Hann fór með liðið tvívegis í úrslitarimmuna um Íslandsmeistaratitilinn og einu sinni í bikarúrslit. Hefur verið aðstoðarþjálfari FH undanfarið auk þess að starfa fyrir handknattleiksdeild FH. Hefur ekki stýrt meistaraflokksliði frá því að hann hætti með Aftureldingu sumarið 2020.

Bjarni Fritzson
Hefur stýrt karlaliði ÍR undanfarin ár bæði í Olís og Grill66-deildinni. Féll með ÍR núna á dögunum og ekkert hefur heyrst úr Breiðholtinu hvort Bjarni yrði áfram með liðið. Bjarni hefur verið eftirsóttur þjálfari undanfarin ár en hlýtur að vera nafn sem er á lista stjórnar Aftureldingar.

Hannes Jón Jónsson
Hannes Jón Jónsson hættir sem þjálfari austurríska úrvalsdeildarliðsins, Alpla Hard frá og með næsta sumri. Hannes Jón tók við Alpla Hard sumarið 2021 eftir að hafa verið þjálfari í nærri tvö ár hjá Bietigheim í Þýskalandi. Þjálfaraferillinn hófst hjá West Wien árið 2015 þar sem hann var þjálfari í fjögur ár en fyrsta árið var hann spilandi þjálfari West Wien í Austurríki. Það verður að teljast ansi líklegt að Hannes Jón sé á lista hjá Aftureldingu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top